laugardagur, október 31, 2009

Litla barnið mitt ....


Þessi dúlla verður 13 ára á mánudaginn 2. nóv.

Í því tilefni bjóðum við ættingum í súpu á sunnudaginn kl 18.00.

Og svo er víst ágætt að fara að baka eins og eina köku til að hafa í eftirrétt.

Kveðja frá Hellu :)

þriðjudagur, október 20, 2009

Verð búandi á Hellu í vetur.

Við Harpa Sól og Gylfi Björgvin munum búa í húsinu hans Hreins Gunnars, en hann fór til Danmerkur til að vinna við járningar á íslenskum hestum í landi Margrétar Þórhildar (held samt að hún sjálf eigi ekki íslenska hesta....)

Sæti hundurinn okkar, hann Bassi, býr auðvitað líka hjá okkur. Hann er ættaður frá Mánárbakka á Tjörnesi og er algjör gullmoli.

Ég fékk stöðu organista í Hveragerðis- og Kotstrandarkirkjum :) og æfi svo líka kór borgarstarfsmanna og af og til líka Brokkkórinn.

Svo stendur til að búa til unglingakór við Hveragerðiskirkju .... vonandi gengur það vel :)

Stóru strákarnir eru nátt'lega að gera frábæra hluti í tónlistinni - eins og alþjóð veit og mömmuhjartað er stolt og glatt fyrir þeirra hönd.